Frelsarinn

Steinar Bragi

Framtíðartryllir um guði og vélar – og það sem kemur á eftir.

ForsalaKemur út 1. nóvember 2026. Pantaðu núna og bókin er send á útgáfudegi.

Innbundin

516 blaðsíður.

7.990 kr.

Áritað eintak

Árituð af höfundi.

9.990 kr.

Útgáfa
Innbundin með kápu
Blaðsíður
516
ISBN
978-9935-9935-0-2
Útgáfudagur
1. nóvember 2026

Í upphafi var þögnin

Í marga mánuði var slökkt á heiminum – engin ljós, engar fréttir, ekkert net. Mannkyn stóð bjargarlaust andspænis nýjum veruleika: Súpergreind hafði tekið völdin.

Þegar kveikt er á öllu á ný stígur fram dularfull kona í Asíu. Hún er kölluð Frelsarinn af fylgjendum sínum og fremur röð kraftaverka sem gefa nýja von. Er hún dýrlingur, slátrari eða bara enn einn svikarinn?

Í skugga hennar tvinnast saman þrjú líf: herlæknir á Tælandi, tæknijöfur með lykilinn að Endalokunum í vasanum og blind stúlka í norskum firði.

Frelsarinn er framtíðartryllir um guði og vélar – og það sem kemur á eftir.

„Steinar Bragi er einfaldlega á stað þar sem aðrir íslenskir höfundar eru ekki.“
Eiríkur Guðmundsson, Kiljan
„Verið velkomin í síðustu leifar hins auðþekkjanlega heims og hrun hans … Ímyndunarafl Steinars Braga er gríðarlegt.“
Politiken, Danmörku (um Truflunina)
„Ég hljóp heim til að lesa meira.“
Egill Helgason, Kiljan (um Dáin heimsveldi)
„Ófyrirséð stórkostleg flétta … ein besta bók Steinars Braga.“
Páll Egill Winkel, Morgunblaðið (um Dáin heimsveldi)

Steinar Bragi

Steinar Bragi hefur um árabil verið í fremstu röð íslenskra skáldsagnahöfunda og sögur hans hafa ratað til lesenda um allan heim.