Mikilvægt Rusl

Halldór Armand

Bráðfyndin og grípandi ástar- og spennusaga sem leiftrar af frásagnargleði.

Innbundin

300 blaðsíður.

6.990 kr.

Áritað eintak

100 eintök, árituð af höfundi.

8.990 kr.

Útgáfa
Innbundin með kápu
Blaðsíður
300
ISBN
978-9935-25-623-2
Útgáfudagur
1. október 2025

Daginn sem forsætisráðherra Íslands biður Guð að blessa þjóðina finnur öskukallinn Gómur Barðdal afskorið mannsnef í ruslatunnu við glæsihýsi í Þingholtunum. Skömmu síðar er frændi hans, seinheppna skáldið Geir Norðann, ráðinn sem ljóðakennari inn á þetta sama heimili. Meðan íslenskt þjóðfélag gengur af göflunum ráðast þeir frændur í að leysa ráðgátuna um nefið ásamt lúgustelpunni Zipo, Kötu bílasala, Diddu öskukellingu, fyrrverandi fangaverði ársins, og fleiri ógleymanlegum persónum.

Hver á þetta nef? Hvernig endaði það í ruslatunnu? Leitin að eigandanum leiðir söguhetjurnar inn í meiriháttar samsæri sem teygir anga sína upp í efstu lög íslensks samfélags.

Mikilvægt rusl er bráðfyndin og grípandi ástar- og spennusaga sem leiftrar af frásagnargleði. Bókin er fimmta skáldsaga Halldórs Armands Ásgeirssonar.

„Halldór Armand er himnasending á tímum sem þessum, ferskur rýnir … djöfullega góður.“
Bubbi Morthens
„Mikilvægt rusl er allt sem mig langar að vera í lífinu – leikandi létt og fyndin á yfirborðinu, djúpvitur, heimspekileg og gagnrýnin undir niðri. Beint í mark.“
Dóri DNA
„Halldór Armand er svo sannarlega ein af þeim nýju röddum í íslenskum bókmenntum sem vert er að fylgjast með.“
Le Monde
„Mikilfenglegur skáldskapur. Feikilega vel heppnuð bók og einstaklega áhugaverð skáldsaga.“
Kiljan (um Bróður)

Halldór Armand

Halldór Armand Ásgeirsson lauk meistaraprófi í lögum við Háskóla Íslands árið 2012 og hlaut nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir handritið að fyrstu bók sinni, Vince Vaughn í skýjunum (2013). Síðan þá hafa komið út skáldsögurnar Drón (2014), Aftur og aftur (2017) og Bróðir (2020) ásamt esseyjusafninu Við erum bara að reyna að hafa gaman (2022). Bróðir var valin besta skáldsagan á Íslensku hljóðbókaverðlaununum 2022. Bækur Halldórs hafa komið út á fjölda tungumála og pistlar hans um samfélagsleg málefni hafa notið mikilla vinsælda.